Forsíða » Allar vörur » Gluggar » Voile gardínur með höráferð
Voile gardínur með höráferð
Við bjóðum upp á glæsilegar voile gardínur með höráferð sem eru úr 100% polyester. Gardínurnar gefa rýminu létta og hlýja stemmingu. Efnið er með fallega áferð, hleypir ljósi inn og hentar einstaklega vel fyrir heimilið, hótelherbergi, atvinnuhúsnæði, búðir, skrifstofurými, fundarherbergi eða bara hvar sem er. Allar gardínur eru saumaðar af klæðskerameistara eftir málum á atvinnusaumavélum. Einstaklingar, hótel og fyrirtæki geta keypt gardínur af AFH.
Hægt er að kaupa efnin eins og sér.
- Fáanlegar í 5 fallegum litum
hvítar, offwhite, beige, brúnar og ljósgráar. - Koma með blýþræði þegar hæðin er 3 m eða lægri annars faldur.
- Hægt að fá þyngingar í endana.
- Einstaklega fallegar og vandaðar í útliti
Þvottur:
Auðvelt er að halda gardínunum hreinum þar sem þær má þvo í þvottavél á 30° með lítilli vindu ( 400 snúninga) með hjólunum í, þær eru hengdar upp beint úr vélinni og látnar þorna.
Verð
5.650 kr án vsk / 7.000 kr m. vsk. meterinn / hæðin á efninu er 3.metrar
Ferlið:
- Sendir tölvupóst á afh@afh.is – lætur fylgja málin af rýminu sem þú vilt fá gardínur – hæð og breidd. Gott að fá myndir líka. Tekur fram ef þig vantar brautir.
- Færð tilboð frá AFH
- Þú skoðar efnin, færð efnaprufur.
- Pöntun fer fram – Þú borgar ½ við staðfestingu á pöntun og ½ við afhendingu á vöru
- Afhendingartími 2-4 vikur.
Fleiri vörur
-
Stóla- og borða cover
Eldhús -
Tannburstar
Baðherbergi -
Hárblásari
Raftæki -
Inniskór – Merktir
Baðherbergi -
Saumasett
Hótelsmávörur -
Bómull – Makó
Sængurverasett -
Kokkafatnaður
Eldhús -
Vanity kit
Baðherbergi











