Forsíða » Allar vörur » Gluggar » Myrkragardínur
Myrkragardínur
Myrkragardínur eru frábær lausn fyrir þá sem vilja alveg myrkur í herbergið til að skapa rólegt og notalegt umhverfi. Við gerum gardínur fyrir heimili, hótel, gististaði eða atvinnuhúsnæði.
Mikið úrval og sérlausnir
Við bjóðum upp á mikið úrval af gardínuefnum, bæði myrkraefni og voile. Hægt er að kaupa efni eitt og sér eða láta okkur sauma gardínur nákvæmlega eftir þínum málum og óskum.
- Myrkragardínur í fjölbreyttum litum.
- Eigum alltaf til vinsælustu litina, beige, gráar með brúnum tón, steingráar og brúnar.
- Eldtefjandi myrkraefni í boði fyrir hótel og stærri húsnæði.
- Hentar jafnt heimilum og atvinnuhúsnæði
Sérsaumur og fagmennska
Allar gardínur eru saumaðar af reyndum klæðskerameistara með atvinnusaumavélum. Við leggjum mikla áherslu á vönduð vinnubrögð og fallegan frágang.
Þvottur:
- Auðvelt er að halda gardínunum hreinum þar sem þær má þvo í þvottavél á 30° með lítilli vindu ( 400 snúninga) með hjólunum í, þær eru hengdar upp beint úr vélinni og látnar þorna. Verð: 3.300 kr án vsk / 4.090 kr m. vsk. meterinn / breiddin á efninu er 1.5 m.
Ferlið:
- Sendir tölvupóst á afh@afh.is – lætur fylgja málin af rýminu sem þú vilt fá gardínur – hæð og breidd. Gott að fá myndir líka. Tekur fram ef þig vantar brautir.
- Færð tilboð frá AFH
- Þú skoðar efnin, færð efnaprufur.
- Pöntun fer fram – Þú borgar ½ við staðfestingu á pöntun og ½ við afhendingu á vöru
- Afhendingartími 2-4 vikur.
Fleiri vörur
-
Sturtuhetta – Merkt
Baðherbergi -
Gardínubrautir
Gluggar -
Augngrímur
Hótelsmávörur -
Hand- og sturtusápa
Baðherbergi -
Stóla- og borða cover
Eldhús -
Kokkafatnaður
Eldhús -
Borðrenningar
Dúkar -
Sloppar – Barna
Baðherbergi













