Myrkragardínur
Myrkvagardínur eru frábær lausn fyrir þá sem vilja alveg myrkur í herbergið til að skapa rólegt og notalegt umhverfi. Allt fyrir hótel gerir gardínur fyrir heimili, hótel, gististaði eða atvinnuhúsnæði.
Mikið úrval og sérlausnir
Við bjóðum upp á mikið úrval af gardínuefnum, bæði myrkvaefni og voile. Hægt er að kaupa efni eitt og sér eða láta okkur sauma gardínur nákvæmlega eftir þínum málum og óskum.
- Myrkvagardínur í fjölbreyttum litum.
- Eigum alltaf til vinsælustu litina, beige, gráar með brúnum tón, steingráar og brúnar.
- Eldtefjandi myrkvaefni í boði fyrir hótel og stærri húsnæði.
- Hentar jafnt heimilum og atvinnuhúsnæði
Sérsaumur og fagmennska
Allar gardínur eru saumaðar af reyndum klæðskerameistara með atvinnusaumavélum. Við leggjum mikla áherslu á vönduð vinnubrögð og fallegan frágang.
Þvottur:
- Auðvelt er að halda gardínunum hreinum þar sem þær má þvo í þvottavél á 30° með lítilli vindu ( 400 snúninga) með hjólunum í, þær eru hengdar upp beint úr vélinni og látnar þorna. Verð: 3.300 kr án vsk / 4.090 kr m. vsk. meterinn / breiddin á efninu er 1.5 m.
Ferlið:
- Sendir tölvupóst á afh@afh.is – lætur fylgja málin af rýminu sem þú vilt fá gardínur – hæð og breidd. Gott að fá myndir líka. Tekur fram ef þig vantar brautir.
- Færð tilboð frá AFH
- Þú skoðar efnin, færð efnaprufur.
- Pöntun fer fram – Þú borgar ½ við staðfestingu á pöntun og ½ við afhendingu á vöru
- Afhendingartími 2-4 vikur.
Fleiri vörur
-
Hurðarhengjur
Aukahlutir -
Sængurverasett – Barna
Barnavörur -
Dúnsæng
Sængur -
Koddahlífar
Dýnu- og koddahlífar -
Sápustandar
Baðherbergi -
Koddi og sæng – Barna
Barnavörur -
Bómullardúkar
Dúkar -
Vanity kit
Baðherbergi













